Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.12.2007 | 21:47
Maður skýtur í sig

Páli varð ekki meint að, en er eins og gefur að skilja nokkuð skelkaður. Ég skýt alltaf löngu áður en áramótin bresta á, ég elska flugelda, segir Páll Jack í samtali við blaðamann Gúrkunnar. Rokið hefur eyðilagt allt fyrir mér og konan reyndi að stoppa mig þegar ég sagðist ætla að fara út að skjóta í dag. Ég sagði henni bara að ég skýt þegar ég vil.
![]() |
Unnið við erfiðar aðstæður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2007 | 20:50
Útilokar ekki þjóðerniskvóta

Þetta fólk er harðduglegt og kann að vinna saman, segir Björgvin. Ég meina, hafið þið séð Kínverja reisa hús? Samvinnan er aðdáunarverð. Íslendingar eru bara frekir eiginhagsmunaseggir.
Björgvin útilokar ekki að þróa þjóðerniskvótakerfið enn frekar og beita mismunandi kvótum eftir starfsgrein. Það væri til dæmis mjög sniðugt að skylda fjármálafyrirtæki og banka til að hafa allavega einn gyðing í hverri stjórn. Þeir eru svo nískir!
![]() |
Kynjakvóti tekur gildi í Noregi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2007 | 18:14
Hlutabréf hækka á næsta ári

Ég hef ráðlagt öllum mínum kúnnum að fjárfesta íslenskum hlutabréfum á næsta ári, segir Hólmar. Ég meina, það er allt á uppleið. Ég er sérstaklega bjartsýnn á að FL Group komi til með að hækka mikið á næsta ári, en það byggi ég svo sem á engu.
![]() |
Hlutabréf lækkuðu á árinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2007 | 17:42
Fellibylurinn Hanna herjar á landið

Selfoss hefur komið einna verst úr óveðrinu, en Ölfussá hefur flætt yfir bakka sína og bæjarbúar sem búa í grennd við ánna eru margir veðurtepptir á þökum húsa sinna. Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur lýst yfir að hann muni gera allt sem í sínu valdi stendur til að koma Selfyssingunum til bjargar, en bætti við að sama hefði ekki gilt um Hvergerðinga, væru þeir í háska.
Búist er við logni víða um land um klukkan sjö í kvöld, en þá verður auga fellibylsins yfir landinu. Loks mun aftur bæta í vind með kvöldinu og nóttin verður Íslendingum afar erfið.
![]() |
Kyrrstæður bíll fauk á hliðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)