Leita í fréttum mbl.is

Jón Viðar ekki velkominn í matarboð fjölskyldunnar

Jón ViðarJón Viðar Jónsson, leikhúsgagnrýnandi DV, er ekki lengur velkominn í matarboð til Droplaugar Nönnu Helgadóttir, frænku sinnar, eftir að hann gagnrýndi matseld hennar harðlega í afmælisveislu Gunnars Gunnarssonar, frænda þeirra.

„Jón hefur ávallt verið frekar ósáttur við það sem ég elda, en þegar hann sagði nálykt stíga af áramótakalkúninum mínum, þá sagði ég stopp,“ sagði Droplaug í sms-i til Gúrkunnar. „Ég mun ekki bjóða honum framar í veislu.“

Í stuttu samtali við Gúrkuna í kvöld sagði Jón Viðar að viðbrögð Droplaugar væru „óttalega klén“ en vildi að öðru leiti ekki tjá sig um málið.

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Haha, ótrúlegur hann Jón...

En gúrka, ég býð spennt ennþá eftir nýrri frétt...það eru liðnir átta dagar for crying out loud!

Helga Björk (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 10:39

2 Smámynd: Sævar Einarsson

Og ég líka ! þetta finnst mér hálf klént, þú færð 3 drullukökur fyrir þetta fréttaleysi !

Sævar Einarsson, 17.1.2008 kl. 08:12

3 identicon

Ég get ekki orða bundist, það er búið að kippa stoðunum undan tilveru minni og gínandi svartnættið er búið að blasa við og ekkert ljós er við enda ganganna: Engar nýjar frétttir í 2 vikur....

dóra drumbur (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gúrkan
Gúrkan

Frjáls og óháð fréttastofa.

gurkutid@gmail.com 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband