Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
1.1.2008 | 18:29
Sá Tarantino í sturtu í Laugum

Ég var bara að pumpa járni í gær, það voru ekki margir í stöðinni, segir Þóroddur í einkaviðtali við Gúrkuna. Svo fór ég sturtu og byrjaði að sápa nakinn líkama minn. Ég byrja iðulega á efri hluta líkamans og vinn mig niður. Svo missi ég sápuna og hún rennur að öðrum nöktum manni sem sagði eitthvað á ensku.
Maðurinn var enginn annar en Quinten Tarantino, en Þóroddur skildi ekki orð af því sem hann sagði þar sem hann lærði aldrei ensku. Núna sé ég eftir að hafa valið þýskunámið, segir hann. Hver veit nema hann hafi verið að bjóða mér hlutverk í nýjustu kvikmyndinni sinni?
1.1.2008 | 17:44
Hundurinn Lúkas hlaut stórriddarakross

Ólafur Ragnar Grímsson afhenti Lúkasi stórriddarakrossinn og skipaði honum svo að setjast. Lúkas hlýddi því og fékk að launum Maryland-kexköku frá forsetanum. Þá strauk forsetinn Lúkasi og spurði hann ítrekað hvort hann væri góður strákur. Lúkas kunni vel við strokur Ólafs, lagðist svo loks á bakið og gaf í skyn að forsetinn ætti að strjúka maga sínum, sem hann gerði.
![]() |
Ellefu sæmdir heiðursmerkjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.1.2008 | 15:48
Ofurbloggari kærir Rúv

Í færslu á bloggi sínu skrifar Hannes að hann muni ekki láta bjóða sér að vera skotspónn háðs, enda borgi hann sín afnotagjöld. Blooblo blooo Þórhallur Gunnarsson blo blo, sagði hann í augljósu uppnámi. Bloblo blooo Páll Magnússon.
Samkvæmt heimildum Gúrkunnar þá íhuga Þórhallur Gunnarsson og Páll Magnússon að höfða meiðyrðamál gegn Hannesi vegna ummæla hans.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2007 | 19:05
Gleðilegt nýtt ár
31.12.2007 | 16:36
Staðarskáli gefur ríkisstjórninni flíspeysur

Peysurnar eru afar veglegar og merktar nafni hvers ráðherra, segir Páll Pétur Pétursson, rekstarstjóri Staðarskála. Með þessari gjöf erum við að undirstrika ósk okkar að þjóðvegurinn færist ekki frá Staðarskála, sem hefur reyndar hingað til ekki staðið til.
Í bloggfærslu sem Össur Skarphéðinsson skrifaði í nótt segist hann ekki ætla að afþakka peysuna, enda sé hún algjört lítilræði. En ef þetta hefði verið úlpa frá 66°c norður eða kraftgalli þyrfti ég að gera eitthvað fyrir sjoppuna, skrifaði hann.
Björgvin Sigurðsson er eini ráðherran sem hefur afþakkað gjöfina, enda á hann að eigin sögn fullt af miklu flottari flíspeysum.
31.12.2007 | 13:37
Félag ófrægra einstaklinga með fræg nöfn stofnað í Vinabæ í gær

Stofnfundur Félags ófrægra einstaklinga með fræg nöfn (F.Ó.E.M.F.N) var haldinn í gær í Vinabæ. Um sjö manns sátu fundinn, sem allir eiga sameiginlegt að vera alnafnar frægra einstaklinga á Íslandi.
Það er ekki nóg að bera bara fyrstu tvö nöfnin, föðurnafnið verður einnig að vera það sama, sagði Einar Bárðarson, formaður samtakanna í samtali við Gúrkuna. Félagið er stofnað sem hálfgerð hagsmunasamtök, en við verðum fyrir mikilli truflun og athlægi í samfélaginu.
Einar sagði ekki óalgengt að blaðamenn og aðdáendur hringi í sig, jafnvel á nóttinni. Verst finnst mér þegar óvildarmennirnir hringja, ég er svo lítill í mér og tek öllu svona mjög persónulega.
Sigríður Beinteinsdóttir, ritari F.Ó.E.M.F.N, segist lengi hafa beðið eftir því að félagið yrði stofnað. Ég er komin með nóg af mótlætinu, sagði hún og tók skýrt fram að hún vildi ekki vera kölluð Sigga Beinteins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2007 | 10:44
Tombólupeningar renna í vasa barns

Forsvarsmenn Rauða krossins á Íslandi eru slegnir yfir framtaki Arons, en tombólur barna eru helsta fjármögnunarleið samtakanna og skila inn allt að þremur milljörðum á ári sem Rauði krossinn notar til að fjármagna hjálparstörf um allan heim.
Aðspurður segist Aron ekki ætla að breyta áformum sínum. Þeir geta bara átt sig, segir hann. Rauði krossinn segist hjálpa börnum. Ég er barn og ég fékk ömurlegar jólagjafir. Ég verð komast á útsölur í janúar og bæta úr þessu.
Ekki náðist í foreldra Arons við vinnslu fréttarinnar.
31.12.2007 | 09:41
Sally Field fagnar nýju ári á Rex

Jóhanna segir vinkonurnar njóta lífsins út í ystu æsar á Íslandi, en Field hefur ekki veitt íslenskum fjölmiðlum viðtöl. Hún hefur þó gefið íslenskum aðdáendum eiginhandaráritanir og veitt íslenskum karlpeningi verðskuldaða athygli, en þeir eru jafnan taldir þeir fallegustu í heimi.
Karlahópur Femínistafélags Íslands hefur mótmælt komu Sally Field til landsins og segir í tilkynningu að ekki beri að fagna komu konu sem hefur hlutgert karlmenn á jafn óvæginn hátt og Field gerði í spjallþætti Conans O'Brian á síðasta ári.
![]() |
Fer á Rex |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.12.2007 | 00:39
Miðnæturbomban ósátt

Ég hef gaman að því að vera úti í roki og rigningu. Það er bara hressandi, sagði Guðrún, holdvot og ósátt þegar blaðamaður Gúrkunnar hitti hana á heimili hennar fyrr í kvöld. Það er ekkert að mér og ég vísa ummælum björgunarsveitarinnar til föðurhúsanna. Gölluð? Þvílík andskotans vitleysa!
![]() |
Miðnæturbomban innkölluð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2007 | 23:59
Jens Guð stofnar trúarsöfnuð

Í samtali við Gúrkuna sagði Jens að stofnun Barna Guðs væri rökrétt skref í kjölfar gríðarlegra vinsælda hans í bloggheimum. Ég var í Ásatrúarfélaginu, en það var nú bara eitthvað flipp, sagði hann. Ég hef lengi kallað mig Jens Guð - svo lengi að margir hafa byrjað að líta á mig sem guð.
Jens segist vera langt kominn með skrif á Biblíu Barna Guðs og bætir við að boðorð hans séu aðeins þrjú. Hann vildi þó ekki gefa upp boðorðin þar sem hann býst við að opinbera þau í fyrstu messu Barna Guðs sem fer fram á Kringlukránni á gamlárskvöld.