Leita í fréttum mbl.is

Sá Tarantino í sturtu í Laugum

ÞóroddurÞóroddur „Tóti“ Magnússon sá bandaríska leikstjórann Quinten Tarantino í sturtu í líkamsræktarstöðinni World Class Laugum í gær. Þóroddur komst þar með í eftirsóknarverða stöðu sem íslenskt kvenfólk öfundar hann örugglega af.

„Ég var bara að pumpa járni í gær, það voru ekki margir í stöðinni,“ segir Þóroddur í einkaviðtali við Gúrkuna. „Svo fór ég sturtu og byrjaði að sápa nakinn líkama minn. Ég byrja iðulega á efri hluta líkamans og vinn mig niður. Svo missi ég sápuna og hún rennur að öðrum nöktum manni sem sagði eitthvað á ensku.“

Maðurinn var enginn annar en Quinten Tarantino, en Þóroddur skildi ekki orð af því sem hann sagði þar sem hann lærði aldrei ensku. „Núna sé ég eftir að hafa valið þýskunámið,“ segir hann. „Hver veit nema hann hafi verið að bjóða mér hlutverk í nýjustu kvikmyndinni sinni?“

Hundurinn Lúkas hlaut stórriddarakross

HressHundurinn Lúkas, sem var myrtur grimmilega á þessu ári en reis upp frá dauðum, var sæmdur heiðursmerki íslensku fálkaorðunnar á Bessastöðum í dag.

Ólafur Ragnar Grímsson afhenti Lúkasi stórriddarakrossinn og skipaði honum svo að setjast. Lúkas hlýddi því og fékk að launum Maryland-kexköku frá forsetanum. Þá strauk forsetinn Lúkasi og spurði hann ítrekað hvort hann væri „góður strákur“. Lúkas kunni vel við strokur Ólafs, lagðist svo loks á bakið og gaf í skyn að forsetinn ætti að strjúka maga sínum, sem hann gerði.
mbl.is Ellefu sæmdir heiðursmerkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurbloggari kærir Rúv

Hannes HannessonOfurbloggarinn Hannes Hannesson hefur kært Ríkissjónvarpið fyrir rógburð og níð í Áramótiskaupinu sem sýnt var í gærkvöldi. Hannes segir að Skaupið hafi varpað „ófyndnu“ og „viðbjóðslegu“ ljósi á bloggara landsins.

Í færslu á bloggi sínu skrifar Hannes að hann muni ekki láta bjóða sér að vera skotspónn háðs, enda borgi hann sín afnotagjöld. „Blooblo blooo Þórhallur Gunnarsson blo blo,“ sagði hann í augljósu uppnámi. „Bloblo blooo Páll Magnússon.“

Samkvæmt heimildum Gúrkunnar þá íhuga Þórhallur Gunnarsson og Páll Magnússon að höfða meiðyrðamál gegn Hannesi vegna ummæla hans.

Gleðilegt nýtt ár

Björn IngiGúrkan óskar lesendum sínum velfarnaðar og velmegunnar á nýju ári. 2008 er ár marðarins samkvæmt evrópskum fornritum. Við fögnum því.

-ritstj. 


Staðarskáli gefur ríkisstjórninni flíspeysur

Páll Pétur sátturRáðherrar ríkistjórnarinnar fengu í gær merktar flíspeysur að gjöf frá vegasjopunni Staðarskála. Er þetta þriðja fyrirtækið sem færir ráðherrum gjöf, en Glitnir og Landsbankinn gáfu kampavíns- og rauðvínsflöskur.

„Peysurnar eru afar veglegar og merktar nafni hvers ráðherra,“ segir Páll Pétur Pétursson, rekstarstjóri Staðarskála. „Með þessari gjöf erum við að undirstrika ósk okkar að þjóðvegurinn færist ekki frá Staðarskála, sem hefur reyndar hingað til ekki staðið til.“

Í bloggfærslu sem Össur Skarphéðinsson skrifaði í nótt segist hann ekki ætla að afþakka peysuna, enda sé hún „algjört lítilræði“. „En ef þetta hefði verið úlpa frá 66°c norður eða kraftgalli þyrfti ég að gera eitthvað fyrir sjoppuna,“ skrifaði hann.

Björgvin Sigurðsson er eini ráðherran sem hefur afþakkað gjöfina, enda á hann að eigin sögn „fullt af miklu flottari flíspeysum.“

Jón Arnór tapaði fyrir La Fortezza

Jón ArnórJón Arnór Stefánsson tapaði fyrir La Fortezza Bologna 6:72 í ítölsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gær. Jón Arnór lék 16 mínútur í leiknum og skoraði tvær þriggja stiga körfur, en lið La Fortezza gekk á lagið þegar hann sat á bekknum og skoraði án afláts.

„Auðvitað er erfitt að standa í þessu einn,“ sagði Jón Arnór örþreyttur í samtali við ítalska fjölmiðla eftir leikinn í gær. „Svona gera Íslendingar bara í útlöndum. Sjáið bara Eið.“

Jón Arnór situr í neðsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar og hefur ekki sigrað leik. Hann hefur skorað 45 stig í 12 leikjum - allt úr þriggja stiga skotum - og fengið á sig 1.652. Eins og gefur að skilja hefur hann hvorki náð frákasti né gefið stoðsendingu.


mbl.is Jón Arnór skoraði 6 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félag ófrægra einstaklinga með fræg nöfn stofnað í Vinabæ í gær

Félag ófrægra einstaklinga með fræg nöfn
Stofnfundur Félags ófrægra einstaklinga með fræg nöfn (F.Ó.E.M.F.N) var haldinn í gær í Vinabæ. Um sjö manns sátu fundinn, sem allir eiga sameiginlegt að vera alnafnar frægra einstaklinga á Íslandi.

„Það er ekki nóg að bera bara fyrstu tvö nöfnin, föðurnafnið verður einnig að vera það sama,“ sagði Einar Bárðarson, formaður samtakanna í samtali við Gúrkuna. „Félagið er stofnað sem hálfgerð hagsmunasamtök, en við verðum fyrir mikilli truflun og athlægi í samfélaginu.“

Einar sagði ekki óalgengt að blaðamenn og aðdáendur hringi í sig, jafnvel á nóttinni. „Verst finnst mér þegar óvildarmennirnir hringja, ég er svo lítill í mér og tek öllu svona mjög persónulega.“

Sigríður Beinteinsdóttir, ritari F.Ó.E.M.F.N, segist lengi hafa beðið eftir því að félagið yrði stofnað. „Ég er komin með nóg af mótlætinu,“ sagði hún og tók skýrt fram að hún vildi ekki vera kölluð Sigga Beinteins.

Tombólupeningar renna í vasa barns

AronHinn 5 ára gamli Aron Angantýr Aronsson hóf í morgun söfnun á hlutum í tombólu sem hann verður með heima hjá sér í Vestmannaeyjum 2. janúar næstkomandi. Aron hyggst láta ágóða tombólunnar renna í eigin vasa, en ekki til góðgerðarmála eins og tíðkast hér á landi.

Forsvarsmenn Rauða krossins á Íslandi eru slegnir yfir framtaki Arons, en tombólur barna eru helsta fjármögnunarleið samtakanna og skila inn allt að þremur milljörðum á ári sem Rauði krossinn notar til að fjármagna hjálparstörf um allan heim.

Aðspurður segist Aron ekki ætla að breyta áformum sínum. „Þeir geta bara átt sig,“ segir hann. „Rauði krossinn segist hjálpa börnum. Ég er barn og ég fékk ömurlegar jólagjafir. Ég verð komast á útsölur í janúar og bæta úr þessu.“

Ekki náðist í foreldra Arons við vinnslu fréttarinnar.

Sally Field fagnar nýju ári á Rex

SallyBandaríska leikkonan Sally Field, sem nú dvelur á landinu, fagnar nýja árinu á skemmtistaðnum Rex í kvöld ásamt góðum vinkonum sínum Stacy Perkins og Jóhönnu Klemenz.

Jóhanna segir vinkonurnar njóta lífsins út í ystu æsar á Íslandi, en Field hefur ekki veitt íslenskum fjölmiðlum viðtöl. Hún hefur þó gefið íslenskum aðdáendum eiginhandaráritanir og veitt íslenskum karlpeningi verðskuldaða athygli, en þeir eru jafnan taldir þeir fallegustu í heimi.

Karlahópur Femínistafélags Íslands hefur mótmælt komu Sally Field til landsins og segir í tilkynningu að ekki beri að fagna komu konu sem hefur hlutgert karlmenn á jafn óvæginn hátt og Field gerði í spjallþætti Conans O'Brian á síðasta ári.
mbl.is Fer á Rex
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðnæturbomban ósátt

FjörGuðrún Karólína Ásmundsdóttir, betur þekkt sem Miðnæturbomban, er mjög ósátt við björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjörg fyrir að kalla sig inn fyrr í kvöld. Þá íhugar hún að höfða meiðyrðamál gegn félaginu fyrir að segja í tilkynningu til fjölmiðla að hún sé gölluð.

„Ég hef gaman að því að vera úti í roki og rigningu. Það er bara hressandi,“ sagði Guðrún, holdvot og ósátt þegar blaðamaður Gúrkunnar hitti hana á heimili hennar fyrr í kvöld. „Það er ekkert að mér og ég vísa ummælum björgunarsveitarinnar til föðurhúsanna. Gölluð? Þvílík andskotans vitleysa!“
mbl.is Miðnæturbomban innkölluð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gúrkan
Gúrkan

Frjáls og óháð fréttastofa.

gurkutid@gmail.com 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband