Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Jón Viðar ekki velkominn í matarboð fjölskyldunnar

Jón ViðarJón Viðar Jónsson, leikhúsgagnrýnandi DV, er ekki lengur velkominn í matarboð til Droplaugar Nönnu Helgadóttir, frænku sinnar, eftir að hann gagnrýndi matseld hennar harðlega í afmælisveislu Gunnars Gunnarssonar, frænda þeirra.

„Jón hefur ávallt verið frekar ósáttur við það sem ég elda, en þegar hann sagði nálykt stíga af áramótakalkúninum mínum, þá sagði ég stopp,“ sagði Droplaug í sms-i til Gúrkunnar. „Ég mun ekki bjóða honum framar í veislu.“

Í stuttu samtali við Gúrkuna í kvöld sagði Jón Viðar að viðbrögð Droplaugar væru „óttalega klén“ en vildi að öðru leiti ekki tjá sig um málið.

Þjálfar alla vöðva líkamans í einu

Dr. LáraVörutorg hefur hafið sölu á líkamsræktartæki sem þjálfar alla vöðva líkamans á sama tíma. Tækið kallast Hringvöðvinn og er þróað af Dr. Láru Bárudóttur. Hún barðist við offitu á sínum yngri árum og hefur leitað að góðum líkamsræktaraðferðum í fjölmörg ár.

„Já, hver kannast ekki við aukakílóin sem á að ná af sér fyrir jól?“ sagði Lára eldhress í viðtali við Gúrkuna. „Við kynnum nú Hringvöðvann, en tækið þjálfar alla vöðva líkamans á sama tíma. Kynntu þér þetta ótrúlega tæki, á Vörutorg.is.“

Félag íslenskra ofbeldismanna mótmælir

Tekist áFélag íslenskra ofbeldismanna hefur mótmælt hugmyndum um að banna þekktum ofbeldismönnum að stunda skemmtistaði. Fréttablaðið greindi frá því um helgina að myndum og nöfnum þekktra ofbeldismanna verði komið til dyravarða sem munu meina þeim inngöngu inn á skemmtistaði.

„Þetta er glatað, hvað eigum við að gera á laugardagskvöldum ef við getum ekki barið fótboltamenn?,“ sagði Kiddi Kylfa, talsamaður Félags íslenskra ofbeldismanna. „Það verður einhver laminn núna, það er á hreinu. Nú setjum við hnefann í borðið.“

Félag íslenskra ofbeldismanna stendur fyrir mótmælum á Austurvelli á morgun klukkan 14. Ofbeldismenn og fórnarlömb eru hvattir til að koma og láta í sér heyra.

Fullt út úr dyrum á bastarðaballi

Margeir og VeraFullt var út úr dyrum á árlegu bastarðaballi Draugabarsins á Stokkseyri sem haldið var á föstudagskvöld. Var fólk hvatt til þess að mæta með bastarðabörn sín með sér, það er að segja börn sem voru getin utan hjónabands.

„Þetta var æðislegt, það var svo gaman að sýna sig og sjá aðra bastarða,“ sagði Margeir Páll Veruson, bastarður og verslunarstjóri Krónunnar á Eyrarbakka. „Ég vissi ekki að það væru svona margir bastarðar á svæðinu.“

Margeir mætti með Veru móður sinni á ballið, en hann hefur aldrei hitt föður sinn. Hún var að vonum ánægð með ballið. „Margeir minn var einmitt getinn á svipuðu balli fyrir 43 árum,“ sagði hún. „Svo er spurning hvort hann eignist ekki systur eða bróður eftir níu mánuði.“
mbl.is Frumlegasta hjákonan verðlaunuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrasta auglýsing Íslandssögunnar

Jón Ásgeir JóhannessonSjónvarpsauglýsing Baugs, þar sem fyrirtækið tilkynnir að það ætli ekki að auglýsa eigið ágæti, heldur  styrkja frekar gott málefni, kostaði rúma 300 milljarða í framleiðslu. Auglýsingin er því dýrasta Íslenska auglýsing allra tíma.

Í auglýsingunni sést fimm manna fjölskylda á strönd í nokkrar sekúndur áður en skilaboð birtast á skjánum. Samkvæmt heimildum Gúrkunnar fengu leikararnir fimm í auglýsingunni um 20 milljarða á mann fyrir að leika í auglýsingunni, sem var tekin upp í Dubai. Þá var mjög fjölmennt lið kvikmyndatökumanna og textahöfunda sem kom að gerð auglýsingarinnar.
mbl.is Magnús Scheving meðal ríkustu manna heims?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umfangsmesti bókastuldur sögunnar

FriðríkinaLögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú umfangsmesta stuld á bókum og ritum sem framin hefur verið á Íslandi. Tugum matreiðslubóka og uppskriftum var stolið úr dánarbúi Kristínar „Kjötkrafts“ Carlsen, en hún er þekktust fyrir að hafa verið sú fyrsta til að skrá niður uppskrift af íslenskri kjötsúpu.

Hin 87 ára gamla Friðrikína „Fífí“ Carlsen, frænka Kristínar, liggur undir grun, en talið er að hún hafi komið bókunum í verð á ársþingi félags íslenskra matreiðslumanna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Friðrikínu, enda á hún ekki gemsa.

Hvorki Siggi Hall né Jói Fel vildu tjá sig um málið við Gúrkuna.
mbl.is Stærsti bókastuldur Íslandssögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var aldrei of þungur

Skamm skammHafþór Geir Njálsson hefur aldrei verið of þungur, hann var bara að plata. Þetta kemur fram í endurminningum móður Hafþórs, Sonur minn, svikarinn.

Hafþór kom eins og stormsveipur í íslenska dægurmenningu á síðasta ári þegar hann steig fram og sagðist hafa misst 200 kíló á hálfu ári eftir að hann hætti að borða djúpsteikt Oreo-kremkex. Íslendingar muna eftir honum á forsíðum blaðanna og kvenfólkið man eftir ótrúlegum danshæfileikum hans á djamminu.

„Ég spilaði með vegna peninganna og athyglinnar,“ sagði móðir Hafþórs í tölvupósti til Gúrkunnar. „En ég get sagt hér með að Hafþór hefur aldrei verið of þungur.“

Líkir sér við Tom Cruise

EyþórPípulagningamaðurinn Eyþór Sigurbjörn Loftsson segist vera Tom Cruise pípulagningabransans. Hann segist vera orðinn hundleiður á því að horft sé fram hjá honum á verðlaunahátíðum íslenskra iðnaðarmanna líkt og Cruise upplifi í kvikmyndaheiminum.

„Nú er ég búinn að pípa í tólf ár og hef ekki unnið gullna skrúflykilinn einu sinni,“ sagði Eyþór öskuvondur í samtali við Gúrkuna. Eyþór er þekktastur fyrir að hafa séð um pípulagnirnar í Smáralindinni, en hann og Valgeir, sonur hans, sáu um verkið einir. „Hvernig er hægt að horfa fram hjá svona? Ég bara spyr. Ég og Tom Cruise erum sannarlega þjáningarbræður.“
mbl.is Líkir sér við Tom Cruise
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flug Eldur sprakk

SprunginnFallhlífarstökkvarinn og tölvunarfræðingurinn Eldur Kári Björnsson, einnig þekktur sem Flug Eldur, sprakk á limminu og komst ekki í mark í gamlárshlaupi knattspyrnufélagsins Ægis í Þorlákshöfn í gær.

„Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir mig og aðdáendur mína,“ sagði Flug Eldur, gjörsamlega sprunginn í samtali við blaðamann Gúrkunnar. „Ég strengdi áramót í heit um síðustu áramót og ætlaði að ná 10 kílómetrum í ár, en það gengur bara betur næst.“

Býður sig fram gegn Ólafi

Brandur í dag.Brandur Njáll Fjóluson, trommuleikari dauðarokksveitarinnar Death Skull, hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta Íslands. Þetta tilkynnti Brandur í fjölskylduboði heima hjá ömmu Fífí um kvöldmatarleitið í kvöld.

Kosningar verða haldnar á þessu ári, en Ólafur Ragnar Grímsson, núverandi forseti, tilkynnti í dag að hann muni falast eftir endurkjöri.

Allir fjölskyldumeðlimir Brands, sem voru komnir saman í matarboðinu, styðja framboðið nema Rúnar frændi. Brandur á eftir að skila Beverly Hills Cop á DVD til Rúnars sem tekur svona „skussaskap“ mjög nærri sér.

„Ég hef mjög mikinn áhuga á ferðalögum og matarboðum. Ég hef eiginlega ekki áhuga á neinu öðru í lífinu,“ sagði Brandur í símaviðtali við Gúrkuna í kvöld. „Þess vegna tel ég kjörið að ég verði forseti og trúi í hjarta mínu að íslenska þjóðin telji það einnig.“

Ekki náðist í Ástþór Magnússon við vinnslu fréttarinnar. 


mbl.is Býður sig fram til endurkjörs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Gúrkan
Gúrkan

Frjáls og óháð fréttastofa.

gurkutid@gmail.com 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband